
Hverarúgbrauð
Uppskrift

Hráefni
190gr rúgur
130gr hveiti
1tsk salt
1,25tsk matarsódi
1,25tsk lyftiduft
125gr hunang
330ml Guinness
Aðferð
Þurrefnunum blandað saman í skál og hrært.
Blautu efnunum blandað saman í skál og blandað.
Hellið blautu efnunum í skálina með þurrefnunum og blandið.
Hellið í mjólkurfernu ekki meira en 1/3 af fernunni því það þarf að búast við lyftingu brauðsins.
Hitið ofninn í 80°C og skellið í ofninn yfir nótt.
Njótið svo með smjöri og ísköldu glasi af Guinness.
