
Rarebit
Uppskrift

Hráefni
50gr smjör
100gr hveiti
50gr Guinness
250gr heldri cheddar
1/2 tsk enskt sinnep
nokkrar skvettur Worcestershire sósa
Pipar
Salt
4 sneiðar súrdeigsbrauð
Aðferð
Bræðið smjörið og smellið svo hveiti út í hrærið saman við lágan hita
Hellið Guinness út í smjörbolluna ásamt ensku sinnepi og worcestershire sósu saltið og piprið
Rífið ostinn út í, smátt og smátt svo osturinn skilji ekki
Kælið osta-Guinness blönduna
Hitið ofn á yfirhita 230°c
Smyrjið brauðsneið með smjöri báðu megin
Steikið brauðið á pönnu þar til sneiðin verður gullinbrún og snúið smyrjið um leið heitu hlið brauðsneiðarinnar og setjið inn í ofninn þar til osta-Guinness blandan er farin að bubbla
Njótið svo með restinni af Guinnessnum sem fór í smjörbolluna.
