
Lava kaka
Uppskrift

Hráefni
150gr smjör
50 gr kakó
75ml guinness
125gr sykur
1 egg
1tsk vanillu dropar
125gr hveiti
1tsk lyftiduft
Aðferð
hita ofninn í 200c smyrja sex lítil eldföst mót
Bræðið smjör, hrærið svo kakó duftinu við ásamt Guinness. Takið af hitanum og setjið til hliðar
Berjið saman sykur og egg með vanillu þar til það er fluffy. Brjótið svo saman við hveiti, lyftiduft og smjörblönduna
Skiptið deiginu niður í sex form og setjið inn í ofn í um 5 mín. Kakan á að vera blaut inn í miðju.
Njótið svo með rjóma eða ís og að sjálfsögðu ísköldu glasi af Guinness
