
Guinness gravy (brún sósa)
Uppskrift

Hráefni
25gr smjör
1 laukur
150ml kjötsoð
150ml Guinness
1msk Worcestershire sósu
1/4tsk hvítlauksduft
1msk dijon sinnep
Aðferð
Skerið laukinn smátt
Bræðið smjör á pönnu við miðlungs hita
Bætið laukinum út á og steikið létt
Bætið hveitinu út á og steikið hveitið smá
Loks er það Guinness og kjötsoðið
Kryddað með Worcestershire sósunni, hvítlauksdufti dijon sinnepi
Salt og pipar
Ef sósan er of beisk fyrir ykkar bragðlauka þá er gott að setja út á sultu, hunang eða eitthvað sætt
